Djö andsk helv langt síðan ég skrifaði síðast! Ættir að skammast þín Guðmundur...
Annars lítið búið að gerast síðustu vikur . . fyrir utan að ég fór á pollamót ((H)eldri manna fótbolti). Það var gríðarlega gaman, algjörlega snilldarhelgi

Höttur er að drulla uppá bak í 2. deildinni...
Spyrni gengur ekki sem best í 3. deildinni, spila fótbolta en geta engan vegin skorað!
Verslunarmannahelgin verður hér fyrir austan, Ómar Hákonar kemur í heimsókn til kallsins. Ætlum að veiða á stöng, skreppa á trillu og tína dún, vefja flugur og eitthvað stöff...hóst hóst!!! hehehe
Lenti í uppákomu í dag.. Sat til borðs hjá presti nokkrum sem ég er búinn að vera að vinna fyrir síðustu 3 daga, þekkti hana (séra Þórey) ekki neitt fyrir það... Er búinn að hafa gaman, hrókur alls fagnaðar og fíflast eins og mér einum er lagið . . Nema hvað að í hádeginu segir síra allt í einu; "Guðmundur minn, hugmyndaflug þitt hefur engin takmörk!" hahahahah

Get eiginlega ekki líst því hvað mér fannst þetta fyndið og sennilega nokkur sannleikskorn í þessum orðum hennar

hehehe
Það er komið partýfólk í íbúðina fyrir ofan mig, aðeins fjögur partý í síðustu viku . . á sunnudagskvöldi, miðvikudagskvöldi og föstudags- og laugardagskvöld.. Alls ekki gott kaaaaffffffi!!!
Fór svo á frábæra tónleika hjá B.Sig á Seyðisfirði síðasta mánudag, geðveikt band og nýju lögin eru að rokka feittttt, gríðar vel malað kaffffffi!!!
Er annars ekkert að frétta af ykkur? Nálgast óðum 100.000 heimsóknir hjá Dúllarakvikindinu!! Sjagalaga
kveðja, Gummó